Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2010

Nú er það svart maður...

...bara allt orðið hvítt. og voða lítið gaman að því skal ég segja ykkur. Hérna á Þingeyri er allt á kafi og ég er farinn að sjá fram á það að þurfa að moka mig út úr húsinu mínu einn morgunin ef að sá gamli ætlar að halda þessu lengi áfram. kannski spurning um að fara að taka skófluna inn, bara svona til öruggis. annars er allt við það sama hérna bara. Ég nenni ekki að fara að vera með eitthvað væl hérna inná þannig að ég ætla s.s. ekkert að fara að segja ykkur hvernig ég er búinn að hafa það undanfarið. Þig megið bara geta í eyðurnar sjálf. annars er ég að býða eftir því að heira frá manni sem að ætlaði að sýna mér hús hérna sem að íbúðalánasjóður er með. Ég er neflinlega að leita mér að húsnæði fyrir verslun hérna. Ég er orðinn hundleiður á að gera ekki neitt og eiga aldrei pening fyrir einu eða neinu. Ekki veður maður í vinnu hérna sérstaklega af því að kellingarnar á vinnumálastofnun senda okkur aldrei í nein atvinnuviðtöl af því að við búum víst svo langt frá Ísafirði. þannig að ég ætla bara að reyna að búa mér til eitthvað að gera hérna.  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband